Hvernig er jólafríið búið að vera ? Eru kílóinn sem þú varst búinn að púla við að losna við alla síðustu önn í ræktinni kominn aftur? Búinn að vinna eins og brjálæðingur útaf LÍN getur ekki drullast til að gefa manni mannsæmandi námslán ? Fátækrarmörk hvað ?? . Eða áttu ríka foreldra og ert búinn að vera tjillin , relaxinn, fara á útsölur í rólegheitunum og horfa á seriu af Sex and the city í góðum fíling í fríinu ?
Eða ertu búinn að vera heima hjá þér með bækurnar uppi og vasareikninn að bögglast við að reikna einhver dæmi útaf þú ert að fara í eitthvað fjárans endurtektarpróf á meðan þú heyrir sprengingar, hlátrasköll og glös brotna úti á götu og allir vinir þínir eru að hringja í þig og reyna draga þig á djammið ? ..........
Þegar Arnþór, Halli , Siggi eða Nonni...tala nú ekki um hann Daða opna á sig munninn og tjá sig þá er oft spurt mig eftir samtalið " bíddu, hvað var hann að segja, ég skildi ekkert" ... Já , það vill oft á tíðum vefjast fyrir mönnum hvað þeir í blanka eru að segja þegar þeir tjá sig. Ástæðan er ekki útaf því að þeir tala eitthvað óskýrt, heldur nota þeir orð sem eru lítt kunn meðal almennings. Þegar fólk hengur alltof lengi saman í endalausum próflestri og verkefnavinnu þá getur þessi einangrun þróast útí nýtt tungumál sem hægt er að kalla blankísku. Þetta er bein afleiðing af því að eiga ekki samskipti við fólk utann ákveðins hóp og þá vill þetta oft gerast.
Hinn venjulegi Jón Jónsson mundi ekki skilja ef Daði mundi t.d segja " Floll , spinnaðu drenginn marhrr" eða Nonni mundi segja að þetta verkefni væri ekkert nema rúnk.
Hér að neðan er þýðing á nokkrum orðatiltækum sem við eigum það til að segja. Held ég sé að gleyma einhverjum orðum, þið bætið bara við drengir,,flllll
Floll eða Flll : Bein þýðing á þessu orðatiltæki er Flottur. En hefur þróast í mjög alhliða orð sem er hægt að nota í öllum samtölum nánast. Getur m.a. þýtt : hæ, bæ, já, góður, ok, sáttur.. tala nú ekki um að fll með spurningarmerki getur þýtt : er gaman ? hvar ertu ? Ertu í góðu skapi ? ... Ég fékk einusinni skilaboð frá Arnþóri sem stóð "Fll?" , og ég sagði " Blessaður, ég er á Hverfsibarnum núna, ég kiki á þig eftir smá stund" .Halli er byrjaður að segja floll, fll í öðru hverju orði þannig maður þarf stundum að hlusta vel og greina hvað öll þessi fll þýða þvi mörg orð koma til greina og ef maður vandar sig nógu mikið þá nær maður að sjá einhverja setningu úr þessu sem meikar semi sense svo maður getur nú skilið Hallz kappa.
slllleiktannnnn: Ekki hugmynd ,spyrjið Sigga, hann er alltaf að segjidda.
spinn: Þetta er nafnorðið Hrekkur einnig sagnorðið að hrekkja. Dæmi : Spinnaðu hann, þýðir Hrekktu hann. Eða :þetta var gegggjað spinn. þýðir :þetta var geggjaður hrekkur. . Við spinnum hvorn annann villt og galið og þetta orð er notað mjög mikið. Sérstaklega í prófalestri útaf,,,,,jú , allt er skárra en að lesa.
Rúnkfag : Rúnkfag má þýða sem Fag sem ekki er þörf á vasareikni. Rúnkfag er ekki endilega auðvelt fag. Getur verið mjög erfitt jafnvel , en þegar eina sem maður þarf að gera er að lesa og muna einhverjar skilgreiningar þá telst það rúnkfag...dæmi : Stjórnun, Markaðsfræði, Alþjóðaviðskipti......Fjármálamarkaðir er semi rúnkfag. Það er ekki orðin fullkomin sátt um hvað á að kalla Fjármálamarkaðafagið. Það hefur verið mikið deilt um það og vináttan hengur á bláþræði í kjölfarið.
Tjahh : Má útleggjast sem "ég veit ekkert hvað þú ert að meina" eða : veit ekki, nenni ekki eða farðu drengur . dæmi : ég segji t.d.: "hey ertu búinn að gera spurningu tvö í fyrra skilaverkerninu, byrjaðirru á að reikna vextina á fyrsta árinu eða hálfa árinu ?" Arnþór : "Tjah".
Fantastic: Frekar nýtt og ferkst inn í flóruna. Þetta er notað þegar vandræðanleg setning kemur frá einhverjum. . Yfirleitt kemur þögn, og þá er tilvalið að segja faaantastik.
Shiiiiii: þýðir eilega shit, en er sagt shiiiiiiiiiiiiiiiii, það er eitthvað við þetta slangur sem er mjög seiðandi og gott, hlustið vel þegar Arnþór segir þetta t.d
Þangað til næst....
Flollll (bæ
Ný skoðannakönnun, Svara , Svara=)